Auglýsing

Fokk jú bloggar.is!

25. mars 2008 klukkan 08:56
Ég er farinn.

(þetta er semsagt hlekkur hér fyrir ofan)


Þórður Ingvarsson
Tilkynning | 1 athugasemd

Heitur andvari

24. mars 2008 klukkan 17:21
Það vindar vel um bloggheima. Vorið handan við hornið.

Það eru breytingar í vændum.
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Ég skrifa hluti já

24. mars 2008 klukkan 09:29
Grein eftir mig á Vantrú: Lögbrjótar, brjálæðingar og bingó - brakandi, blússandi, blítt og gott bagl í boði bellna, barrans BlogDodd.
Þórður Ingvarsson
Tilkynning | Engin athugasemd

Hvað hefur þetta fólk á móti peningum?

24. mars 2008 klukkan 06:28
Það er á tímum einsog páskum sem fer verulega í mann að búa í smábæ þar sem veitingahúsarekendur fylgja hinum trúarlagalega helgidagabókstaf. Pískaðir og þjakaðir áfram af fjársektarsektarkennd ef sýslumanni eða lögreglu dettur í hug að heimsækja búllurnar sem þessir einstaklingar reka. Þetta virðast vera fólk sem hafa misst af markaðsviti 101 í sjónvarpinu.

Rétt einsog með jólin, þá kemur töluverður slatti af brottfluttum bæjarbúum til að heimsækja ættingja, vini og vandamenn, jafnvel máske fara í einhvera fermingarveislu/r. Og auðvitað til að fara á fokking fyllerí. En frá fimmtudegi til sunnudags var aldrei hægt að tylla sér niður við hrörlegt borð á knæpu í mesta bróðerni og dreypa á öl, jafnvel spila púl og spjalla við fólk sem maður hefur ekki hitt í töluverðan tíma, áður en farið var í vinnu.

Jú, það var dansiball eftir miðnætti föstudags langa á Víkinni. Vei. Ég var að vinna og hefði ekki nennt að mæta hvorteðer. Svo fór allur laugardagurinn í einhverjar fermingarveislur á öllum helstu stöðum og frá því að þeim veislum lauk rétt fyrir kvöldmat og þar til klukkan mun slá mánudagur (jafnvel þriðjudagur) þá drýpur ekki dropi úr bjórdælunum. Hverskonar yfirkeyrð fokking foráttuvitleysa er þetta? 

Ég endurtek, það var slatti af fólki sem brunaði í bæjinn, flest frá Bænum. Mörg hver - ef ekki öll - vön því að allavega einhver bjórbúllan sé opin á þessum dögum. En af öllum þeim tveim stöðum sem mest líklegir voru til að slökkva þorstann hjá ölþurrum hálsum þá var hvorugur opin. Það sem angrar mig allra fokking mest við þetta er einmitt áðurnefnd staðreynd: fullt af brottfluttum bæjarbúum að kíkja í bæjinn, segja hæ við foreldra og systkini, éta mat, hafa gott og svo bruna aðeins á barinn og hitta aðra með drykk í hönd.

Þetta getur ekki hafa verið hið goðsagnakennda gvuðhrædda smábæjarmentalítet, þetta var bara pjúra fokkíng heimska og ekkert annað.

Nema að þau hafa verið hrædd um að sami snælduvitlausi fávitinn og varð næstum manni að bana á dansiballinu á Víkinni væri enn á stjá með blóðuga glerbrotið sitt. En sá maður hefði verið fláður og stjaksettur áður en hann hefði stigið fæti inn. Af hverju er Keflavík ekki með meira aðdráttarafl fyrir útúrspíttaða og oftjúnaða búðinga? Gera Keflavík að heillandi glæpanýlendu fyrir upprennandi moðhausa með kriminal tendensa svo sómasamlegt fólk getur andað léttar.

Páskafokk!

23. mars 2008 klukkan 09:24
Fokking páskar!

Tengi oftast páska við vorið, smá hlýja og ágætis veður, jafnvel gleði.

En þetta er ömurlegt.

Leiðinlega páska öllsömul!
Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir

Gleðilega fokking páska...

22. mars 2008 klukkan 21:54
... mæ es.

Hér í útnára markaðs- og viðskiptahelvítisvit eru allir þrír til fimm vín- og/eða veitingarekstraraðilar alveg uppgefnir eftir fermingarveislur og, nema að Kokkurinn sé sá eini í fullu svíngí, þá eru allir staðir lokaðir. Hvergi hægt að tylla sér niður og fá sér einn kaldan af krananum.

Dagskráin í sjónvarpinu er allyfirþyrmilega ömurleg. Nostalklígju þáttur Hjálmars var illþolanlegur, maður þurfti bara kyngja úldnu kekkjunum. Það er ótrúlegt að lítil sem engin breyting hefur verið á grínurum sjónvarpsins. Þetta væri máske líkt fyrir einn þjóðfélagshóp að vera alin upp við sama leikaraliðið í Saturday Night Live frá 1976-81 (með smá eða meiri liðsstyrk frá ´82-87), Chevy Chase, Bill Murray, Steve Martin, Eddie Murphy, John Belushi og fleiri í næstum tuttugu ár eða álíka og að annar þjóðfélagshópur sem, upplifir viðlíka svívirðingur frá sóvétstyrktum, Síberískum, fimm til sex manna grínhóp sem eru skuldbundir lífi sínu til að grína allt til enda sinna lífsdaga burtséð frá hæfileikum þeirra til spaugilegs ímyndurnarafl. Nokkurskonar gúlagsgrínarar með þar til gerðum lögum og greinargerðum hvað telst fyndið og hvað ekki, ef reynt er að gera eitthvað frumlegt verðurðu skotin fimm sinnum, fyrst í hné, olnboga og svo maga, og látin blæða út á frekar húmorslausan hátt. In Soviet Russia Comedy Becomes You.

Eini ljósi punkturinn í þessum kvöldþætti Hjálmars, Er grín G-vara?, voru sketsj SigurJón Gnarr, snjótyppið, Laddi/Felix og Limbó, þessar örfáu skínandi stjörnur er veittu útnáraungdómi og öðrum gárum á árunum ´94-98 von um betri gríndaga í komandi framtíð.
En, vei, svo skyggði yfir hlátursfjöllum íslands þegar Spaugstofan var aftur sett á dagskrá og húmorharðindin hefur eigi horfið að fullu síðan þá. Og þó hefur grínið fundið sinn einstaka farveg í öðrum miðlum. Samt sem áður hefur stór hluti þjóðarinnar verið hýdd í ljósblaktandi stofunni í hartnær tíu ár af sveittum gaddaleðurspaugbeltum Pálma, Karls, Sigurjóns, Erni og Randvers. Stöku sinnum hefur þjóðinni fundist það gott (mmm svo gott) en á heildina, varðandi almenna andlega læknisþjónustu, veitt oss hverskonar sálardeyðandi og óbætanlegan skaða (æ,ó, á! Ekki svo gott).

Það verður helgur, heilagur helgidagur þegar síðasti spaugstofumaður verði riftur samningurinn og viðbjóðurinn verður loksins tekið af dagskrá og öldur þessa tiltekna ljósvakatímabils mun aldrei finna farveg í þessum heimi né öðrum, en ef það er óhjákvæmilegt þá væri heppilegt ef það það mundi hverfa inní eitthvert af þeim fjölda ormagöngum himingrínsins og ferðast til áttunda víddar Dantes og aldrei finna leið til baka.

Frá og með þeim degi, ár hvert í mörg þúsund árþúsund, verða valdir einstaklingar af samskonar húmorskalíber til að setja upp sketsj þeirra og að loknum gjörningi þeirra útvöldu verða þau brennd á báli meðan hlæjandi múgurinn haldast í hendur og horfa á, til að minnast þess ömurlegu tíma er Spaugstofan var helsti brandari... ööh... gvuðs? Og hvað vér erum þakklát Þórhalli ljósvakagoða fyrir þann mannsæmandi heiður og velvild við samborgara er hann er hratt þeirri atburðarrás af stað er hófst með því reka Randver útí kuldann, og í kjölfar stafrænna hræringa varð pressan á RÚV svo gríðarleg að yfirmenn sáu sér ekki annað fært en að þóknast alþýðunni og kippa hvern af öðrum á brott, veita þeim sendiherrastöður. Þetta voru endalok Spaugstofunar

Heill sé Þórhalli Ljósvakagoða hinum grávanga um ár og aldur.

Grínistar eiga að sjá þann sóma í sér að vita hvenær þeirra tími er uppurin, þó Spaugstofumenn mega eiga þann heiður að gefa smá innspýtingu og smá viðbót við hinn afar sérkennilega íslenska húmor, þá var grín Spaugstofunnar komið svo langt yfir síðasta söludag að hún var orðin hlandsúr í mygluðu skötulíki, og það er afar sérhæfður og sjaldgæfur smekkur. Afturhaldshúmor, sem er ekki einu sinni hægt að hlæja að nema af einhverri einkennilegri skyldurækni:

The Sketchologizer
Actual original transcript
Sketch by: Örn Árnason
[Örn Árnason labbar inná almenningsalerni og kemur sér fyrir milli tveggja kamra]
[Karl Ágúst og Pálmi labba inn og koma sér fyrir framan sitt hvoran kamarinn, sitthvorumegin við Örn]
[Örn múltítaskar og rennir niður buxnaklaufunum tekur út typpið og Karl og Pálmi byrja að pissa]
[Að loknu hlandstreymi félagana, þá hristir Örn tólin þeirra beggja, beygir sig niður og stingur þeim báðum uppí kjaft sér og sýgur og sleikir á þeim typpin]
(innsk.: Hér virðist Örn orðinn dálítið æstur)
[Pálmi kömmar í augað á Erni, meðan Karl fær það uppí munninn á mér]
(innsk.: Líklegt brot af þessu atriði hafi ekki verið gert)
[Skot af klofinu mí... Örns]
[Hann gengur frá typpunum og Karl og Pálmi fara]
[Það kemur lítið perraglott á Erni]
[Feid út]
[Svo er þetta bara auglýsing fyrir nýja atvinnu: Sjúgarinn/hristarinn eða eikvah, ahaha ógó fyndið strákar, er það ekki?]

Hárnákvæm og útreiknuð
viðbrögð einstaklinga
í áhættuópnum
Andlausir
Iktsjúka
Dauðvona
Spaugstofu-áhorfendur (AIDS-Á):
Ha. Ha. Ha. Ha.
Þvílíkur blússandi húmor.
Hó. Hó. Hó. Hó.
Örn tók um typpin á þeim.
Hí. Hí. Hí.



En komment Hjálmars um þessa "hommalegu" svía, það var skemmtilegt.

En samt, sjitt, að hugsa sér að vera alinn upp við næstum sömu sjónvarpstrúðana í 20-30 ár! Vá, dísus.


Edit 23/3 08:29: Smá breytingar
Þórður Ingvarsson
Raus, Grín | 2 athugasemdir

Messur

21. mars 2008 klukkan 21:22
Getur þetta pakk ekki virt mitt trúleysi og hætt að mæta í messur!

 Ég verð svo svakalega reiður þegar þau hundsa mig svona og auk þess særir þetta trúleysistilfinningu mína!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Að temja sér draumamálflutning moðhausa

20. mars 2008 klukkan 02:24
Ætli maður verði ekki að fara láta blautan draum sumra skinhelgra trúmanna rætast hér og nú, gera þeim yndislegan greiða og skrifa einsog hinn versti fantur. Hvað gerir maður ekki fyrir óvita?

Máske geta þau einhverntíman í fjarlægri eða nálægri framtíð vísað í skrif mín og bent á, hreykin, stolt og blístrandi full af kristilegri ást og kærleik, að hér sé hatursfullur maður með hjarta fullt af hatri sem hatar alla og suma meira en aðra því ég byggi siðferði mitt og lífsgildi á hatri vegna þess að viðkomandi er trúlaus.

Þegar ég tala um trúaða bavíana þá er fífl bara ekki nógu sterkt orð til að lýsa þeim einu og öllu með tölu. Heimskingjar er ansi þurrkuntulegt orð og dugar ekki heldur sem gott lýsandi nafnorð yfir þessum svartholum gáfna og skilnings. Vanvitar er nokk nálægt því sem maður vill segja um innræktaða, biblíberjandi roðhálsa, en kemst ekki í hálfkvist við það sem ég er reyna leita af.

Mig vantar orð sem sameinar vitstola, slefandi fæðingarhálfvitar og því miður dugar mongólítar ekki til þess verks, enda væri það sannlega og sannarlega særandi fyrir þroskaskerta einstaklinga, og aðstandendur þess, sem eiga sum hver sárt um að binda og það er bara ekki sanngjarnt að spyrna þessum tveimur hópum saman vegna þess að annar hópurinn eru vitleysingjar án þess að vita það meðan hinir eru einfaldega með súran frómas í sínu trúaða toppstykki og finnst það frábært.

En eitthvað verð ég að nota, svo að fáfróðir abrahamsþöngulhausar geti nú vísað í einhver öfgafull skrif sem er fátt annað en upphrópanir og ekkert innihald. Ég gæti gert þetta að heilagri leit af særandi ummælakaleik, þó held ég að sú ferð muni standa stutt. Og þú spyrð:Af hverju?

Því að ég á erfitt með því að koma mér inní hugsunarhátt fávita sem skeina sér með verstu versum biblíunnar til að gera mér alminilega grein fyrir því hvernig maður fer að því að skrifa einsog hinn versti fantur og hvernig skal smeygja sér ljúflega í silkihanska, svipað og prestur laumar sínum lúkum í buddur gamla fólksins, til að orða mjúklega og fallega ábendingar sínar hvað betur má fara hjá hinni háheilögu, óskeikullu, "ekkert slæmt um helvítið segja" opinberu evangelísku ríkiskirkju án þess að útúr þeim orðum megi lesa að verið sé að kalla alla kristna einstaklinga fávita, hálfvita, heimskingja, óvita, vanvita, vitleysingja, fífl, bavíana, mongólíta, asna, bjána, kuntur, skítaklepra, prumpuhala, þöngul- og moðhausa et cetera ad infitum dominus rectus spiritus penis derive digit.

Mér þætti gaman að vita það og öll aðstoð er vel þegin.

Einnig væri góður bónus að fá fleiri uppnefni.
Þórður Ingvarsson
Raus, Trú | Engin athugasemd

Arthur C. Clarke (1917-2008)

18. mars 2008 klukkan 23:55
Las það rétt í þessu að hinn mæti og mesti vísindaskáldsagnahöfundur Arthur C. Clarke hafi látist, níræður að aldri, á spítala í Sri Lanka.

Clarke var án efa langþekktastur fyrir samstarf hans með Stanley Kubrick, önnur látin hetja, þegar þeir unnu að gerð einni bestu sæ-fæ-kvikmynd allra tíma 2001: A Space Odyssey.

Þetta gæti hryggt suma. En, fokk, hann var orðinn níræður og allveikur gjemligjemlinn.

Merkilegast finnst mér að Stefán Fr. hefur ekkert minnst á þetta!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Bingó!!!

18. mars 2008 klukkan 14:08
Vantrú býður uppá bingó föstudaginn 21. næstkomandi. Það var nú einskær tilviljun sem réði því að þetta sé á föstudaginn langa.

Ætli þessir öfgamenn hlekkji sig ekki við Jón Sigurðsson?! Til alls líklegir þessir bljálælingar!
Þórður Ingvarsson
Tilkynning | Engin athugasemd

Typpatómljóð

18. mars 2008 klukkan 13:03
Bababa!        Barrb!
Ræræræræræræræræræræ!
Ræræræræræ!Já!Ræaæaææa!
Ræræ, já!Typpið mitt!Já, ræræ!
Ræræræ!Er fínt typpi!Ræræræ!
Seisei!Dugar í sitt!seisei!
Jájá!Hvað einsog!Jájá!
Að stinga í
Ágæta píku
Eða rassgat
Eða halda í
Ljúfan lófa
Og það má
Strjúka smá
Eða sjúga á
Sleikja, jájá
Af hjartans
Ómældar lyst
Svo það rísi
Aðeins meira
En þessi agnar
Litla skömm
Ójá!
´

i
i
.        .
..,i,..
_______------=========-----______

Að hugsa sér, að svonalagað birtist eigi í Lesbók Morgunblaðsins! Þvílík list! Þvílík fegurð!
Þórður Ingvarsson
1 athugasemd

Páskagleði

18. mars 2008 klukkan 01:08

Já!       Já!
Páskar!    Páskar!
Ræræræ! Ræræræræ!
Páskar! Seisejá! Páskar!
Ræræræ! Ræræ!
Ræræræ!

!


Þetta er mun betra!
Og algjört mússjímúss fyrir ykkur öll.

Hommar!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Fokking feisbúkk!

17. mars 2008 klukkan 23:33
Hví?! HVÍÍÍÍÍÍ!?

Ég skráði mig í þetta í mesta sakleysi, bara svona til að tjekka, rétt líta í kring og vita hvað er svona merkilegt við þetta, en það er ekki langt að líða þartil öll stafræn trikk í bókinni notuð til að halda manni á þessum eina stað með grilljón gylliboðum um ekki skeifugörn!

Beiðni um að planta blómi í garðinn minn?! Ha?! Plantaðu blómi uppí rassgatið á þér!

Beiðni um að þú ert æðislegur! Þú ert hommi!

Beiðni um mínia fulla vini?! Ég veit hverjir mínir fullu vinir eru og ég er ekki að fara á fyllerí með Feisbúkk!

Fyndasta manneskjan?! Plútó!

Hvaða gvuð er ég? Radíkalus!

Hversu kaldhæðinn er ég?! Alveg mega!

Hverskonar einræðisherra er ég? Vigdís Finnbogadóttir!

Hversu nálægt er ég að sjúga á mér typpið?! Fjögur rifbein og einn hryggjalið!

AAAAARGH!

Hver er tilgangurinn með því að sameina allt það versta sem finnst á internetinu (vita gagnslausar kannanir) með því allra versta sem finnst á internetinu (myspace)? Til hvers? Svo maður veslist upp fyrir framan tölvuskjáinn svarandi beiðnum einsog maður eigi lífið að leysa? Nei, takk! Feisbúkk! Húmbúkk! Konsentreitaður internetúrgangur úr eyra!

Frekar vill ég veslast upp fyrir framan tölvuleiki, maður fær allavega smá á tilfinningu að maður sé að gera eitthvað af gagni. Gordon Freeman, ég skal tala fyrir þig enítæm.
Þórður Ingvarsson
Nöldur og pirringur | 1 athugasemd

Páskabrund

17. mars 2008 klukkan 23:10
Ó, það eru að koma páskar og öll börnin komin í páskafrí!
Sem vilja borða stór súkkulaðiegg og háma í sig sykurhúðað sull!
Kókójésús, strumpar og annað ævintýr sem stendur í biblí!
Vei sé þeim er virkilega halda að það sé eitthvað frussuprump!

Páskar, já, páskar!
Þvílík heljarins ósköp, seiseijá!
Páskar, já, páskar!
Hei! Krakkar! Hei! Krakkar!
Hei, hó, hæ, jibbíjei!
Það er frítt nammi í mínum stóra, skuggalega bíl!

Hei! Hvert eruði að hlaupa?

Ha? Herra lögreglumaður, ég, nei, ég var bara að keyra, einn og sveittur. Kannast ekkert við ósæmilega hegðun gagnvart ungum strákum með stinna og kúlulaga rassa...mmmmmmhmm... ha? Hvað ertu að gera? Hvað í!

Á, æ, ó.

Veit ekki, finnst vanta eitthvað gott páskalag. Þetta er þó alls ekki skref í rétta átt. Það er næstum allt við þennan texta alveg kolrangt, en það er þó ágætis endir á þessu.
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Alveg agalega

16. mars 2008 klukkan 03:28
Færslur sem í spaugilegum tilgangi ýja að nauðg, barnaníð ellegar annarskonar afbrigðilega nautn, er alls ekki vinsælt. Bara svo þið vitið það.

Bloggarar athugið! væri betri titill á þessari tilteknu færslu.

Nema að einhverskonar brot á sæstrengi hafi skipt máli.

Efast um það.

Third meða Portisthead er afbragð.

Þórður Ingvarsson
Tónlist, Raus | 1 athugasemd

Dísús!

15. mars 2008 klukkan 11:17
Hvað var í gangi í hausnum á mér í nótt?

Æ, já, auðvitað. Nú man ég. Etanól.
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Über ja?! Das ist!

15. mars 2008 klukkan 03:57
Mig grunar að til sé fólk sem tekur hluti fullalvarlega. Veit eigi hvort þetta sé rétt, en það hríslast um mig sterkur grunur, rétt einsog þegar gamli ókunnugi kallin á ættarmótinu fyrir næstum átján árum síðan kom að mér, spjallaði lítillega við mig á einkennilegu nótunum, þetta var þegar ég var sirka tíu ára (einsog sirka áður segir) og sagði að þetta væri alltílagi. Svona gera allir. Bara snúa mér við, girða mig og beygja. En fyrst og fremst: þegja.

Hríslast að mér grunur að fólk tekur suma hluti of alvarlega sem skrifað er á internetið.

Ef þetta er rangt, þá er ég übersyfjaður með viðbjóðslegan einkahúmor vegna þess að mér finnst þetta skondið. Sorrí. Einfaldlega venga þess að sambærilega minsnotkun hefur ekkert breyst. Ekkert.

Þið stjórnmálaportkonur (bæði kyn, þó aðallega karlkyn) með botoxtyppi uppí ykkar anal... ég veit ekki hvað ég get sagt annað en að þið sjúgið karlmannlegan og rígulegan hrossaböll til að viðhalda núverandi og versnandi ástandi og montið ykkur af því að ekkert hefur breytzt, og allt batnandi fer. Sei, sei, sjúga og sleikja.

Einsog alvöru atvinnustjórnmálahórur. Eina sem vantar að Össur, Ingibjörg, Geir, Guðlaugur og co væru með eyðni, eitt sveitt og olíborið grúppsex og þá máske mundi þetta pakk huga aö öðru en stöðu sinni.

Skítapakk.
Þórður Ingvarsson
Vel kenndur, Viðbjóður | Engin athugasemd

Waaat?

15. mars 2008 klukkan 03:44
Varetti ekki að virka?

Kommonn, það er varla hægt að toppa þetta með "Þú ert miklu betri en mamma!"

Getur ekki klikkað!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Skotheldar pikköpplínur fyrir djammið

14. mars 2008 klukkan 19:49
Hver kannast ekki við pikköpplínulista á netinu? Þessi er engu skárri, fyrir utan þá staðreynd að allar þessar línur virka eitt hundrað prósent!*
  1. Komdu að ríða, rottan þín!
  2. Koma heim til mín og gera eitthvað dónalegt? Einsog að serða?
  3. Má bjóða þér kaffi meðan ég slafra á pjöllunni þinni?
  4. Ég á ekki smokka, en ég get tekið þig í ósmurðan analin, það er næstum því nákvæmlega eins.
  5. Eigum við að koma í læknaleik, hóran þín?
  6. Mig langar að vita hvernig anal shpincterinn þinn virkar
  7. Má ég fista þig?
  8. Þú minnir mig á mömmu mína.
  9. Viltu gera sömu mistök og foreldrarnir þínir?
Og sú lína sem garanterar ólympískar bólfarir eftir djammið er:

10. Uss, uss, þetta er alltílagi. Það þýðir ekkert að öskra, það heyrir enginn í þér hvorteðer. Mmmmhmmmm, já þetta er svo gott. Uss, uss, svona svona, ég skal syngja lítið lag fyrir þig "Sofðu unga ástin mín..."

*eflaust pottþétt ekki
Þórður Ingvarsson
Kolsvartur húmor | 1 athugasemd

Lít út einsog gamaldags bresk bófabulla

14. mars 2008 klukkan 19:04
Svartur, þykkur jakki við svartan kúluhatt eða svartan sixpensara, ullarpeysa, Breiðavíkurbolurinn, gamlar gallabuxur, þykkir leðurglófar og krúnurakaður. Vantar samt alminilega svarta og snjáða skó. En hef samt ytra útlit fyrir að bækla fólk með groddalegum lögreglukylfum ellegar stórum skiptilykli. Þarf að temja mig að nota orðið "Guv´" við öll tækifæri.
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Að sitja á sumbli

14. mars 2008 klukkan 18:59
Þvílíkt heljarins djamm verður í kvöld maður! Vúúúhúúú! Harmonikufélag Hornafjarðar mun halda uppi stanslausu stuði frá miðnætti til morguns á Víkinni. Allir helstu slagarnir teknir í görnina! Þetta verður kreizí!!! Aaaaaaaaaúúúúú! Berbrjósta bombur, pjöllurnar og tittlingarnir lafandi, orgía við sviðið! Jeeeeee! Get varla beðið.

En best að leggja sig aðeins svo maður verður fílefldur fyrir kvöldið í kvöld! Blússandi harmonikudjamm og bilaðir ellibellir munu skalla hvorn annan útaf gömlum syndum! 
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Ekki vera svona kaþólskur!

13. mars 2008 klukkan 11:22
Í þessari viku er búið að vera kaþólsk vika á Vantrú. Mæli með greininni Af páfum og perrum eftir Brynjólf Þorvarðson, afar fróðleg.
Þórður Ingvarsson
Tilkynning | Engin athugasemd

"Ég var algjör lúði"

12. mars 2008 klukkan 18:41
Var að glugga í DV og sá þar athyglishóruna Ásdís Rán sem reglulega hórast í helstu hórublöðum landsmanna, þ.e. DV og Séð&Heyrt. Vekur athygli fyrir að nethórast og auðvitað fær atvinnuljósmyndahóran viðtal í hóruritinu DV, sem var þetta allsvakalega flennistóra hóruviðtal . Eitthvað minntist hún á að hún hafi verið algjör lúði á sínum yngri árum. Nei, það er rangt. Hún var feit hlussutussa. Eina sem hefur breyst að hún virðist eingöngu vera tussa núna. Með stór brjóst. Og maular reglulega á gömlum typpum. Hef ég heyrt.

Er ég bitur? Nja... bara smá.

Hóra og typpi eru uppáhaldsorðin mín í mars. Fylgist með.
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Að tjá sig í kvikmyndum

12. mars 2008 klukkan 13:53
Það hefur hent stöku sinnum að þegar ég hef ekkert betra að segja þá tala ég í kvikmyndalínum. Tökum sem dæmi, ef einhver mundi spurja mig hvað ég gerði um helgina, þá mundi ég eftir mesta megni reyna svara með eftirfarandi hætti:

Ég fékk þessa svakalegu þörf að fá mér eggjasalatssamloku. Svo ég fór út í búð og keypti 12 egg, sauð þau öll. Svo nostraði ég við salatið í svona þrjá tíma. En þegar ég var búinn, þá langaði mig ekkert í eggjasalatssamloku. Skipti svosum engu máli, ég átti ekkert brauð hvorteðer.

Svo er maður náttúrulega alltaf með einhverja frasa héðan og þaðan á takteinum, sem ég brúka líkt og kleppskæk. T.d. "I´m the juggernaut bitch!", "Who are you?", "Get out!", "When a man is pushed. Killing´s as easy as breathing." og "I... don´t... know!!" sem var svo skemmtilega sagt af karakternum Brick leikinn af Steve Carrel í Anchorman.

En það er þó eitt sem ég er enn eftir að temja mig að gera, hið ótrúlega 300-meme, en það er að kynna sig t.d. sem "ÉG ER ÞÓRÐUUUUR!" eða "ÞETTA ER HÖÖÖÖFN!" og sparka svo í einhvern. Eða "Í KVÖLD MUN ÉG SNÆÐA! Í HELVÍTI!!!ELLEFU!1111!" Vandamálið við það þó er að mér fannst 300 ekkert sérlega góð mynd.
Þórður Ingvarsson
Grín, Kvikmyndir | 10 athugasemdir

Brandari

12. mars 2008 klukkan 13:45
Ókei, prestur, rabbíni og íman labba inná bar og, ég man ekki smáatriðin, en mamma þín er hóra.
Þórður Ingvarsson
6 athugasemdir

Tilfinningahórur

11. mars 2008 klukkan 22:53
Það er alveg hreint agalegt þegar viss viðkvæm viðfangsefni eru í deiglunni þá eru meiri líkur en minni að það endar í einhverju kellingavæli. Til dæmis hórdómur, niðurhal og fíkniefni. Af hverju er ekki hægt að taka á þessu öðruvísi en í einhverri manískri hysteríu sem þjónar engum tilgangi öðrum en að fresta umræðunni þar til næsta hystería hefst.

Flott væri ef íslenskur femínisti mundi taka annan pól í hórutalinu og viðurkenna tilvist hinna sáttu atvinnportkonu og bauna því að fjölmiðlum að máske megi sleppa að blanda mansali, klámi og niðurlægingu veikara kynsins inní þá tilteknu umræðu og kannski viðurkenna einnig tilvist portkarlanna sem dúkka sjaldnast upp í þessu máli. Geggjað ef lögga mundi koma með sínar vel útlistuðu vangaveltur varðandi vafasama vímugjafa og stinga uppá aðrar og skárri aðferðir til að minnka neyslu þess og það á annan hátt en að eltast við einhverja rauðeygða, pleissteisjonspilandi, flatbökusmjattandi, mussuklædda hasshausa til að fangelsa og vonlausan hræðsluáróður sem hrynur niður um leið og maður fer í bláan skugga eftir smá læknagras. Tótalí övsöm ef útgefandi mundi ræða um þetta ólöglega niðurhal án þess að fordæma meirihluta landsmanna sem vel skipulagðan glæpahring með bremsufar í buxunum og ræða aðrar lausnir en kærur og sektir, til að mynda með því að ræða við netfyrirtækin og í raun fokking fagna þessu dreifingarformi enda komin fokking tími til.

Maður bíður spenntur eftir því að skynsemin taki völdin.
Þórður Ingvarsson
Raus | 1 athugasemd

TestAmenT

11. mars 2008 klukkan 13:15
Mikið agalega er maður eitthvað langt á eftir. Vinur minn keppurinn kom mér á bragðið af TestAmenT fyrir nokkrum mánuðum síðan, og ég hef verið að fikta, einsog dópisti fiktar við heróín, og ég held að ég gæti orðið fíkill. Þetta er þrusustöff!

Hef hlustað á Demonic, sem er þrusumetall, og The Gathering, sem er einnig þrusumetall. Þarf að tékka á eldra efni með þeim.

TestAmenT eru svo að fara gefa út plötu sem kemur út í lok apríl sem gæti einmitt verið assgoti góð plata ef eitthvað er að marka tóndæmið af mæspeis-síðunni þeirra og heitir More Than Meets the Eye. Gæti jafnvel lent í topp tíu listanum í lok árs.

Þeir fóru allavega þá leið sem Metallica hefðu átt að gera, en því miður reyndu bullukollarnir í Metallicu að gera eitthvað nýtt með alveg hreint hræðilegri útkomu í formi ShitLoad og MegaShitLoad, og svo hina mesta metalmóðgun síðari ára með St. Nigger.

Hvort það verði einhver sáluhjálp hjá þeim með næstu plötu, Chinese Democracy II... tja, tíminn leiðir það í ljós.
Þórður Ingvarsson
Tónlist | 3 athugasemdir

Fle.. ble... öööh, ha?

11. mars 2008 klukkan 03:12
Ég held ég hafi bullað yfir mig... dísús kræst.

Hvað er þetta, einsog fyrrum elsta kellinginn á landinu sagði oft, já?

Þessi færsla er með öllu tilgangslaus.

Ég meina, hvað ertu að lesa þetta, þarna, dýrið þitt?
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Best að muna...

08. mars 2008 klukkan 10:02
... að bögga þetta pakk. Þetta eru aðiljarnir sem "reka" þetta bloggar.is, svara ekki emilum eða öðrum skilaboðum sem mér finnst jafngilda dónaskap sér í lagi og sérstaklega þar sem maður er borga einhverjar krónur fyrir þessa "þjónustu" og eru þar af leiðandi fáráðlingar þar til annað kemur í ljós.
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Þarf ég að hreyfa mig?

07. mars 2008 klukkan 19:21
Í vinnunni gerðist ég svo vitlaus að láta narra mig í að skrá mig í eitthvað skrokkahreyfingarátaksprump þar sem stefnan er sett að hreyfa sig eitthvað af viti, s.s. ganga, skokka, armbeygjur og einhverjar hreyfingakombó sem ég er fyrir löngu búinn að gleyma síðann íþróttafasismann í grunnskóla (sparka í bolta? lyfta höndum? teygja á typpi?), allavega minnst hálftíma á dag.

Ég get svosem sagt "Ég var skokkandi frá því ég fór úr vinnu og þar til ég mætti í dag! Amfetamínsterar? Virka einsog galdrar!" þegar ég er spurður "Jæja, hvað hreyfðirðu þig mikið í gær?" En ég er meira líklegur til að segja "Átján mínútur" einsog ég gerði um daginn, en maður reynir nú að fara eftir dyggðinni hans Sobbegga og segja satt og rétt frá.

En gvuuuð hvað ég nenni þessu ekki. Ég vill frekar safna ístru og drekka bjór... er það ekki æfing?
Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir

Smá plögg

06. mars 2008 klukkan 18:55
Má til með að benda á viðtal sem Birkir fialar tekur við Fannar aumingja en tilgangurinn er að plögga bandinu Tentacles of Doom, sem er glettilega skemmtilegt sörferpönkband, allavega það sem ég hef heyrt. Vona samt að TOD hætti ekkert á næstunni svo maður geti nú átt möguleika að sjá þau læf.

Ekki sakar nú að systir mín Alexandra mundar míkrófóninn.
Þórður Ingvarsson
Tónlist | 2 athugasemdir

Enn mjög hvasst í Öræfum

06. mars 2008 klukkan 16:55
Sá þessa frétt á mbl.is með fyrirsögnina Enn mjög hvasst í Öræfum og ég kinkaði kolli og hugsaði með mér "Já, það er enn mjög hvasst í Öræfum", svo varð mér litið á "Bloggaðu um fréttina" og sá þennan frumlega titill á bloggfærslu er heitir einfaldlega Enn mjög hvasst í Öræfum. Ég varð svo furðu lostinn að moi átti varla til eitt aukatekið orð því mig grunar, ekki það að ég vilji setja mig á háan hest og vera merkilegri en aðrir, að höfundur færslunnar, Enn mjög hvasst í Öræfum, hafi kannski lesið hina afar fróðlegu færslu mína Að koma með hnyttna titla. Ég held það, en get ekki verið viss, en tel það ansi líklegt. Köllum það kvenlegt innsæi.

Enn vitaskuld hefur þetta kvenlega innsæi kolrangt fyrir sér, en allar fyrirsagnir frussuprumpsins er á sömu leið: Veiktist á æfingu, Síðstu nornirnar náðaðar, Litháískir fangar til Litháen og svo framvegis sem eru allt fyrirsagnirnar á fréttum mbl.is, og það er ekki einsog verið sé að koma með einhvern vinkill á þessar fréttir, þetta er nær allt á sömu leið "Æ, æ, æ. Þar fór í verr. Biðjum fyrir því!"

Þvílík fokking frumlegheit! Amazing stuff! Ég er orðlaus frá og með þessum degi! Ó MÆ GAD! DÍSUS FOKKINGNESS ÖVSÖM SJITT OFF DEÐÐÐ!
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Ömurlegt!

06. mars 2008 klukkan 16:46
Þetta á eftir að vera leiðinlegur dagur! Eitthvað fokking fárviðri á austurlandi sem gæti verið að hafa þau sérkennilega leiðinlegu áhrif að ég get ekki fullnýtt áskrift mína að veraldarvefnum, og sökum þess kemst ég eigi á erlendur síður né íslenskar síður hýstar á erlendum server. Ef ég væri langt leiddu netfíkill þá mundi ég örugglega hengja mig. En ætli ég láti ekki duga að skera mig í lærið til finna sársaukan og upplifa veruleikann.

Það er svo gott.
Þórður Ingvarsson
1 athugasemd

Þurrkuntuleg færsla fyrir ykkur alvarlega fólkið

06. mars 2008 klukkan 02:42
Samkvæmt þessum vita vonlausa teljara hjá þessu vita vonlausa bloggar.is-kerfi fæ ég á bilinu 40-60 heimsóknir á dag, hátt uppí 100 ef vel lætur, en af þessum heimsóknum fæ ég meira en 200 flettingar á sama degi, sem þýðir, ef ég er ekki að misskilja þetta drasl, að sama fólkið er að koma hingað aftur og aftur og virðast öll beinlínis hugsa "ælovitt"  þegar kemur að því að lesa það sem ég hef að segja, máske einhverskonar masókistafílingur. Eða öfund. Eða typpi. 

Þetta er ekki mbl.is, langt í fokking frá, og þetta er ekki heldur einhver handahófskennt moggabloggsíða sem fá að jafnaði þúsund heimsóknir á dag fyrir það eitt að segja við frétt "Já, aldeylis! Svna á bra eky að líþasd!". Þetta er blogdodd! Og vinsælasti blogdoddinn sem ég og eflaust nokkur annar veit um. 

Þannig að það virðist vera töluvert þröngur hópur sem les það bull sem ég hef yndi af að bulla hér, stundum finn ég þessa þörf að bulla heil ósköp og oft á dag. Bullið getur náð áður óþekktum hæðum  að ég gríp sjálfan mig við það vandræðalega móment að þegar ég tel mig hafa náð hámark bullsins þá kem ég sjálfum mér á óvart með því svaðalegra bulli sem meira segja ég hef ekki áður séð neinstaðar á veraldarvefnum, sem ég er áskrifandi að og  ég les það, allt, á hverjum degi. 

Og þetta er einsog að labba inná baðherbergi og sjá sjálfan sig vera dansa rúmbu við polka, íklæddur nærbuxunum af ömmu slengt yfir batman-búning hannað fyrir tíu ára gamla krakka í hjólastól. Þetta getur bara ekki verið að gerast!

Ég lít á þessa vefbók sem minn leikvöll, ég er bara með smá saklaus strákapör sem skaðar engan, ég tel mig ekki vera kasta grjóti í neinn, moka sand í augun á smástelpum og sparka í punginn á gömlum elliæringjum. En mér líður stundum einsog það séu fjöritíu til sextíu manns í kringum þennan sandkassa með steinsteyptan undrunarsvip að glápa á einhvern einkennilegan mann sem hefur fælt öll börnin í burtu, nema eitt, sem hann hefur barið til óbóta með dauðum ketti og áhorfendurnir vita einfaldlega ekki hvað á að segja né gera og bíða þess í stað eftir að einhver geri eða segi eitthvað, sem er ekkert að fara gerast, en hafa samt ekki enn áttað sig alminilega á innihaldinu í þessu einkennilega tei sem þau súptu á fyrir aðeins meira en hálftíma síðan og það er í raun ekkert fyrir framan þau. En það er ekki oft sem mér líður þannig. Samt einkennileg tilfinning.
Þórður Ingvarsson
Raus, Grín, Egó | 4 athugasemdir

Að koma með hnyttna titla

05. mars 2008 klukkan 14:59
Það er heilmikið streð skal ég segja ykkur.
Þórður Ingvarsson
2 athugasemdir

Snarltourette

05. mars 2008 klukkan 14:30
Eitt besta snarl sem ég veit um, og hef smjattað á í fjölmörg ár, er typpi. Nei, er rúgbrauð með slatta af smjöri og alveg gífurlega þykkt lag af osti (ekki typpaosti) og ískalda mjólk til að sjúga og sleikja. Drekka. Og typpi. Ég held ég hafi fyrst komist á bragðið (á typpi, nei rúgbrauð með osti) þegar ég var smápatti, enda byrjaði þetta smátt einsog öll neysla á góðu typpi... sjitti meina ég. Ég setti bara kannski smálag af typpi smjöri og svo tvær þrjár sneiðar af typpi, oooh, osti á rúgbrauðið. Oft fékk ég mér bara eintóman typpiost, það fannst mér gott... typpi. En eftir því sem árin liðu þá skellti ég alltaf ögn meiri af smjöri og fleiri sneiðar af osti á typpið.

Var einmitt að snæða mér á eitt stykki ljúffengu typpi núna í þessu. Nei, rúgbrauð með typpi og osti.
Þórður Ingvarsson
Grín, Matur | 7 athugasemdir

Teprur

05. mars 2008 klukkan 07:33
Maður kemur með eina serðsögu og sumt fólk fær hland fyrir hjartað. Hrmph. Bara að reyna hafa smá fjölbreytni í þessari vefbók!

Ætli þetta muni hafa svipuð áhrif líkt og gamli góði skotinn sem hlóð brú, byggði hús, gróf göng í gegnum fjall en var ekki þekktur fyrir neitt annað en að hafa serðað eina kind?

Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Íslenskan og ég í þremur máls- og efnisgreinum auk ótal setningum með slatta af samanburðar- og aðaltengingum

04. mars 2008 klukkan 22:09
Ég tel mig vera frekar langt yfir meðallagi er kemur að íslenskukunnáttu og sökum mínu sæmilega háu sjálfsáliti er ég hef gagnvart mínum málfræðigáfum kemur fyrir að ég seilist heldur of langt í gáfuhjalsvasann sem getur oft endað í eintómri steypu einfaldlega með því að gera til dæmis heldur langar setningar einsog í þessu tiltekna tilfelli og rúnka mér við smá orðskrúð til að krydda örlítið uppá lesturinn en geri mér varla grein fyrir því að pokinn er tómur en samt held ég áfram að rembast einsog rjúpan við staur að skrifa eitthvað sem mér finnst sniðugt útaf því bara vegna þess.

Nú hafa tveir aðiljar bent mér á ýmislegt sem betur má fara í mínum skrifum en það er einn sem ég þekki ágætlega og annar sem ég þekki varla en báðir boðist til að hjálpa mér og eigi neita ég því að þetta eru aldeilis ágætis tilboð sem ég mun ekki fúlsa við og mun eflaust nýta mér þar til það blæðir úr augntóftum öðrum hvorum ellegar beggja.

Vissulega viðurkenni ég að málfræði mín er á köflum sárlega ábótavant en ég er alltaf tilbúinn að læra eitthvað nýtt og gamalt vegna þess að á mínum yngri árum var ég aldeilis ekki glöggur né góður nemandi en var þó nokk hugmyndaríkur er kom að ritgerðum og öðrum skrifum og eftir því sem árin liðu varð áhuginn á að nema nýja hluti enn meiri og sá áhugi hefði ég nú ekki mótmælt á grunnskólaárum þegar ég vildi einna helst leika mér í tölvunni svo það má vera að ef fram heldur sem á horfir verð ég orðinn framúrskarandi í íslensku rétt áður en ég missi vitið og eyði síðustu ævidögum mínum í að reykja ópíum í einhverju valmúagreni í Afganistan eða Kína.

Eþa eky.
Þórður Ingvarsson
Egó | 3 athugasemdir

Letin uppfærð

04. mars 2008 klukkan 14:19
Ég tók bara út þessa hlekki, eina ferðina enn, og mun einhverntímann í framtíðinni dunda mér við að setja það upp aftur, ef ég nenni.

Einu sinni fannst mér þetta kubbakerfi hjá þessu bloggar.is vera alltíkei, en mér finnst allt sem tengist bloggar.is vera frekar mikið slor. Til að mynda fær maður ekkert að fikta í sjálfu innviðinu, html-gabblinu og öllu því, það finnst mér heldur lélegt.

Af hverju er ég ekki bara búinn að flytja mig aftur á blogger.com?
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Serðandi vandi

04. mars 2008 klukkan 13:48
Þessi fína helgi sem leið lenti ég tvennskonar vanda, sem var hugsanlega af sama meiði. Fyrir það fyrsta varð ég alveg gígantískt fullur, einsog ég lofaði sjálfum mér og svo mér til mikillar og bókstaflegrar undrunar náði ég að snapa tjeddlingu uppí rúm til mín.

Ég var mjög undrandi á þessum ótrúlegu og nýuppgötvuðu höstl-hæfileikum mínum, mig rámar í að ég hafi sagt eitthvað á þessa leið í minni skýrustu þvoglmælsku "Hey, eigum við að koma heim til mín og gera dónalega hluti?" og hún jánkaði við því. Ég var forviða. Svo á leiðinni frá einni nálægri blokk og alla leið heim til mín var ég með þennan ankarlega undrunarsvip og hugsandi "Vattðefokk?"

Þegar heim var komið rumpaði ég öllu drasli af rúminu, reif hana og sjálfan mig úr fötunum og uppúr því upphófst ólympísk bólfimi sem graðir mongólítar í strætó geta vart toppað með frumlegu sólósexi. Maður var sjúgandi og sleikjandi og kjassandi og káfandi og puttandi og hvaðeina (überperrinn sem býr í öllum mönnum vill segja fistandi, rimmandi, gullinsturtandi og bukkakendi og svo leyft félaga mínum að fá the sloppy seconds meðan ég horfi á, makandi saur á búkinn) og þetta entist í töluverðan tíma.

En þrátt fyrir þessa massívu tugþraut í bólinu þá tók maður augljóslega eftir einu rísandi vandamáli, það dældist ekki nægilegt blóð í liminn. Það var einsog tittlingurinn hafi ákveðið af sjálfsdáðum "Æi, geturru ekki fengið einhvern annan til að gera þetta, ég er þreyttur!" Sem mér fannst ansi skringilegt því typpið hefur ekki gert annað en að pissa ansi reglulega og brunda ögn oftar, en hefur ekki komist í kynni við kvennmann í einhvern tíma.

En það kom þó ekki að sök, þannig séð, þar sem hún var ekki á pillunni og hvorugt okkar með önnur getnaðarvarnarúrræði (ég gleymdi samt að spurja hvort hún vildi ekki bara fá hann í analinn, en mig vantaði ljúbið og þrútinn lim) og hún vildi ekki gera of dónó nema ég væri með smokk, ég hefði þó getað gengið fram að henni og sjálfum mér og sagst geta náð í sellóplast, en mér datt það ekki í hug og mér til efs að ég hefði ælt því útúr mér þrátt fyrir töluvert prómílmagn og vitleysishátt. Þó varð mér hugsi, var ég virkilega svona fullur að blóðrásin var í annarlegu ástandi eða gæti verið að ég hneigist í einhverja aðra átt.

Og, mun ég sjá eftir því að hafa ritað og opinberað þessa tiltekna færslu?

Njaaa...
Þórður Ingvarsson
Egó | 11 athugasemdir

Leti

04. mars 2008 klukkan 06:42
Mikið agalega þarf ég að laga þennan hlekkjalista. Ooooooooooooh! N´énennikki!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

RoboLol

03. mars 2008 klukkan 22:35
Stundum reyni ég að vera fyndinn, og það fer oftast fyrir ofan garð og neðan hjá vitgrönnu fólki.

Fyrir örfáum færslum síðan ritaði ég eilítið um áætlun mína að vera gífurlega fullur, í raun "leiðinlega og þvoglumælskulega fullur að ég mun vonandi míga, skíta og æla á mig og undrast svo innilega akkurru fólk vill ekki tala við mig."

Af einhverjum ástæðum datt mér í hug Emil Antonowsky, leikin af Paul McCrane, í kvikmyndinni RoboCop. En það er atriði í því meistaraverki þar sem téður Emil reynir að keyra á CyberMurphy í yfirgefnu eiturefna-verksmiðjunni, en RoboCop er svo snar í snúningum að hann færir sig ögn frá og Emil keyrir beint inní eiturefnaúrgangstank með þeim afleiðingum að hann sturtast útúr sendiferðabílnum með sullinu. Hann hokast áfram í brennandi sársauka, nær varla andanum meðan húðin byrjar að leka af honum sökum eiturefnabruna. Emil hittir einn af félögunum sínum sem fríkar út við fríkið og segir "Get the hell away from me man!". Eftir það fær Emil einn sóðalegasta dauðdaga kvikmyndasögunnar. Það sem er einna einkennilegast við þennan dauðdaga er það að þó að Emil hafi verið algjör mörður þá var þessi dauðdagi eitthvað svo tragískur, maður dauðvorkenndi greyjinu.

En.

Maður gúglaði naturligt Emil og fann þessa fínu mynd og ég bætti smá texta til yndisauka og húmors, semsagt eitthvað sem maður er vís til að segja blindfullur á hinu klassíka trúnó. Ég viðurkenni að þetta er að vísu nett sérhæfður húmor því hann krefst þess að fólk hafi séð RoboCop og að þetta atriði sé í fersku minni. Þetta var útkoman:



Í kjölfarið á því datt mér í hug að það væri máske sneddí að gera smá tilraun til að koma af stað afar tímabundnu trendi á umræðuvefnum Taflan, vitandi það að voða fáir mundu taka það upp. Ég meira segja bjóst við því að til væri fólk sem mundi ekki finnast þetta fyndið einfaldlega vegna þess að hafa ekki séð RoboCop, en það er náttúrulega ekki mitt mál að sumir eru með fleiri litninga en aðrir og hafa ekki horft á þessa Bandarísku menningarperlu. Svo ég stofnaði þráð er ber sama heiti og titill færslunnar og póstaði fyrrgreindri mynd.

Það var ekki langt að líða þar til einhver gáfnaljósin komu með sína afar vel framsettu skoðun á þessari litlu tilraun. "Ha?" "*boringgeispbroskall*" og eitthvað "mímímí" Andsvar mitt var þetta:



Og mannvitsbrekkurnar fóru aftur á stjá og báðu eitt af fáu alvöru gáfumönnunum, sem stunda þennan tiltekna umræðuvetvang, að gefa mér svotilkallað "fial" á þráðinn.

Þó kom einn RoboCop-aðdáandi mér til varnar, að ég held, og tilkynnti að það setur enginn "fial" á RoboCop. Ég gerði samt heiðarlega tilraun, sem þó gæti hafa misskilist sem svo að ég hafi baunað að síðasta ræðumanni, en það var ekki ætlunin:



En samt virtist ekkert bóla á minnst einum sem þætti þetta kjánaskítatrend vera skondið. Ég bjóst ekki við því að hér væri á ferðinni grín sem mundi orsaka eitthvað lolocaust meðal netverja, alls ekki. Það virðist vera útbreiddur misskilningur hjá þessum blússandi bavíönum að allt sem er póstað á Grín-spjallið eigi skilyrðislaust að vera besta spaug í heimii og verði að innihalda einhverskonar aðferð til að koma af stað serótínsofflæði og vera alveg gíga-fyndið þannig að fólk liggi í krampakasti og finnast ekki fyrren morgunin eftir þegar mammann kemur til að vekja litla rúsínurassgatið svo það taki þunglyndislyfin sín með serjósinu og mæti á réttum tíma í skóla en koma að englabossanum skjálfandi á gólfinu í annarlegri stellingu, með svo kreppta hnefa að hnúarnir stingast útúr húðinni og með þykkt lag af gulu slefi lekandi úr kokinu sem flæðir í átt að inniskóm móðurinnar sem starir á barnið sitt með titrandi tár og tennur og eigi vitandi sitt rjúkandi ráð.

Smá fliss er ekki nóg, það jafngildir öm og misheppnað prump.

Ó jæja, maður getur ekki alltaf verið fyndinn, en kommonn, mér fannst þetta, í mínu strákslega sakleysi, vera bara skondið, skríkti pínku að þessari semifrumlegu hugmynd. Er ég máske einn um það?



Þórður Ingvarsson
Grín, Kvikmyndir | 2 athugasemdir

Flóðgáttir fávitaháttsins

03. mars 2008 klukkan 18:43
Ragnar Þór Pétursson hefur skrifað tvær greinar á Maurildi sem allir tölvunotendur og netverjar ættu að láta sig varða og taka alvarlega: Offors? og Frelsi og ábyrgð. Þetta eru afspyrnu vel skrifaðar greinar og afspyrnu góðar.

Með stuttu millibili hafa fallið dómar er tengjast tölvunotkun. Særandi ummæli á bloggi og svo er loksins búið að dæma í hinu alræmda DCplúsplús-máli sem dúkkaði upp fyrir mörgum tugum ára (í netárum). Níu einstaklingar dæmdir til að sektar, og ef það er ekki nóg, þá fá kærendur allan tölvubúnað í sínar hendur.

Maður spyr sig - er þetta þróun að þjóðfélagi sem ég vil búa í? Í staðinn fyrir að leitast eftir friðsamlegum lausnum þá er láglaunafólk (geri ég ráð fyrir) stefnt fyrir að nýta sér tækni tuttugustu og fyrstu aldarinnar.

Félagsmenn Samtaka myndrétthafa mafíunnar á Íslandi geta ekki verið með hausinn svo langt uppí rassgatinu á hvor öðrum að það vessar skítur útúm öll hauskúpugöt. Er ástandið virkilega svo slæmt er kemur að hugmyndaflugi að ekki er hægt að fala eftir t.d. annarskonar aðstoð frá netfyrirtækjum en IP-tölum - einhverskonar fjárhagssamningum, s.s. að glæpasamtökin SMÁ-MÍS fái vissan hagnað frá hverju mega- eða gígabæti af niðurhöluðu efni frá þekktum torrentsíðum, s.s. VikingBay? Það að dánlóda dóti frá netinu er hvorki að fara í nákomnri né fjarlægri framtíð og lausnin felst ekki í því að kæra hvern þann sem gerir það, það endar bara á versta veg, til dæmis þannig að meðlimir SMÁ-MÍS munu standa hnédjúpt í blóði sinna eigin barna og/eða kjökrandi í einhverjum steinsteyptum kjallara á Blöndósi með netfíkli í fráhvarfseinkennum og exi í hönd.

Að bólugrafnir únglíngar með bremsufar í brókinni, einsog hinn meinti barnaníðingur orðaði það (hef ég heyrt), fái harðari dóm fyrir niðurhal en herramenn sem nauðga smástelpum bendir til enn meiri fokkd öpp forgangsraðar í þjóðfélagi sem hægt er að þakka verulega fökkd öpp einstaklingum.
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Blúsandi fín helgi

02. mars 2008 klukkan 09:49
Til hamingju ég! Mér tókst, loksins, að draga borgarrottubarn frá borginni til Hornafjarðar! Sá hinn sami sló tvær flugur í einu höggi og stoppaði í nokkra daga á öðru skítapleisi á Suðurlandinu, en mikið afskaplega er ég samt ánægður að hann hafi komið hingað og heiðrað nærveru okkar barbarana. Bara glæsilegt, og ekki bara að hann Óli hafi komið, drukkið bjór og gist, en þá varð hann endilega að gera lítið úr mínum gáfum og visku með því að benda mér á glæsilega íslenska málfræðistaðreynd sem er nú brennimerkt í mitt minni. En hann mun ekki geta bent mér á eitt né neitt eftir ég hjó af honum báða vísifingur og sneiddi tungu hans á brott. Þessi munir eru nú í formalínskrukku inní herbergi öðrum til víti og varnaðar. Ég hef alltaf rétt fyrir mér.

En mikið agalega er erfitt að sannfæra suma um að ferðast rúmlega 430 kílómetra útí rassgat, máske að þetta pakk haldi að það sé einfaldlega að keyra útí óbyggðirnar þar sem ekki fást flatbökur né pulsur!

Helgin var glæsó, máske ég reyni að ræða það frekar síðar.

Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir

Fokking Taflafokk

01. mars 2008 klukkan 18:49
Þetta er alveg fokking óþolandi!

Með öllu ólíðandi!

Ég er moðerfokking bit!

Brjál! Fokk! Sjitt!

Skítaþjónusta!

Viðbjóður!

Og það er ekkert bara ég sem er að lenda í þessu!

Af hverju þessi fokkittí fokk fokk er ekki fyrir löngu búinn að kippa þessu í liðinn er með öllu óskiljanlegt!

Þreytandi sjitt fokk!


Server not found

Firefox can't find the server at www.taflan.org.

  • Check the address for typing errors such as
ww.example.com instead of
www.example.com

  • If you are unable to load any pages, check your computer's network
connection.

  • If your computer or network is protected by a firewall or proxy, make sure
that Firefox is permitted to access the Web.


Fokkjú jú fokking fokk!
Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir