Leiðinlegasta færsla í heimi
24. febrúar 2008 klukkan 08:56
Þetta verður að gerast, óumflýjanleg staðreynd bloggheima. Það kemur ávallt að svona ögurstundum, erfiðum ákvörðunum. Jafnvel þó að innst inni hefði ég viljað hætta að blogga eftir bestu færslu í heimi, þá getur smáborgarabloggarinn í mér bara ekki orða bundist og ég verð, neyðist, finn þessa óútskýranlegu þörf til að blogga um eitthvað vitagagnslaust, tilbreytingarsnautt og ömurlegt. Allt sem verður skrifað hérmeð mun fölna miðað við þá færslu sem, því miður, og það hryggir mitt hjarta, mun hverfa af forsíðunni. Ég finn tár á hvarmi, ekkasog í aðsiglingu, seratón-flæðið minnkar, sorg myndast og söknuður við sjóndeildarhringinn.
Ég er vitaskuld að tala um hina goðsagnakenndu RAMBO-færslu. En, ég mun ávallt minnast þín, mín elskulega RAMBO-færsla, það var heiður að skrifa þig.
RAMBO-færslan lengi lifi!
Heill sé þér!
Halelúja!
Ég er vitaskuld að tala um hina goðsagnakenndu RAMBO-færslu. En, ég mun ávallt minnast þín, mín elskulega RAMBO-færsla, það var heiður að skrifa þig.
RAMBO-færslan lengi lifi!
Heill sé þér!
Halelúja!