Auglýsing

Glatað

20. október 2006 klukkan 19:02
Það er svo margt glatað þessa dagana. Hið stórfurðulega alþjóðlega eip yfir íslenksum hvalveiðum er ótrúlega glatað. Hin stórmerkilega afneitun vígðra manna að skóladjáknar eru ekki að boða trú sína í skólum. Og þegar maður missir allt álit á einstaklingum og allt viðhorf gagnvart viðkomandi breytist á svipstundu. Það er tótallí glatað. Þetta er þó ekki langur listi, en mér dettur í hug grínistarnir í nafni gvuðs, postullarnir Jón og Davíð.

En byrjum á þessum fjaðrafoki í kringum þessa 10 hvali sem veiddir verða af Hvali9. Bretland og Bandaríkin ruku fyrst upp í sinni siðferðislegu réttlætiskennd að ekki mega depa sætu dýrin með fallegu augun. Bandaríkjamenn huga að viðskiptaþvingunum gagnvart Ísland útaf þessum skepnum, sem er, einsog allir vita, eina skynsamlega lausnin til að hindra viðkomandi ríki frá einhverju sem er ekki alþjóð (les=USA) þóknalegt, ég meina, sjáið árangurinn í Írak! En leyfa samt eskimóum í sólskinsríka ríkinu Alaska, sem er hluti af hinu kristilega bandalagi norður-Ameríku, að veiða 50 hvali árlega, skemmtileg hræsni þar á ferð. En hafa þeir hugað að viðskiptaþvingunum gegn Japan (500 hvalir árlega)? Eða Kanada (800)? Nú eða Færeyjar (1000)? Nú er bara að bíða eftir að Paul Watson birtist, en honum verður örugglega sýndur sá sómi og heiður að vera hengdur og líkið brennt á ljósastaur.

Veruleikafirring kirkjunnar er einnig ægilega furðuleg. Senda presta og djákna út og suður í hina og þessa skóla til að ræða við börnin um allt annað en trú ef marka má orð biskups, presta og djákna. En það sem þetta eru atvinnulygarar, þá er ekkert að marka orð þessara töfralækna og seiðskratta. Í skólum þar sem hin svokallaða "vinaleið" er í boði fer fram kristinboð. KRISTINBOÐ! Það er verið að boða trú! Þarna eru seiðskrattar að valsa um ganga skólana, boða til sín krakka til að tala við, og hann þarf ekki einu sinni að fá leyfi foreldra enda hefur hann leyfi skólayfirvalda, og um hvað mun þessi maður tala um. Tölvuleiki? Bíómyndir? Náttúruna? Eflaust eitthvað lítillega, en Ésú Kristur, Biflían og Gvuðsi gamli munu án efa staulast inní umræðuna einsog um staðreyndir væri að ræða. Það er svosem hægt að sýna fram á þetta með slæmum samanburði:

Þegar grínisti fer með grín, þá er hann að grínast.
Þegar trúmaður fer með trú, þá er hann að trúboðast.

En vissulega fer það eftir ýmsu hvort manni finnst grínistinn vera fyndinn og trúmaðurinn vera trúverðugur. En trúarbragðagrínistar eru án efa ófyndnasta starfstéttinn sem er eflaust einhverstaðar til. Einsog mér finnst margt fyndið sem Jón Gnarr hefur gert, þá bara finnst mér hann ekki fyndinn lengur og það er ef til vill útaf því hann vill ekki vera það lengur. Og eins mikið ég hafði dálæti af Davíð Þór, þá hefur það dálæti minnkað töluvert útaf upphrópunum og aðdróttunum og reglulega slæma pistla undanfarið. Og eins mikið og ég vissi ekkert hver Eyvindur Karlsson var, þá veit ég það núna og það er einstaklingur sem ég hef lítinn áhuga á að vita meira um.
Þórður Ingvarsson
Raus | Engin athugasemd

Fyrir það fyrsta!

20. október 2006 klukkan 19:02
Ég held að Blogger.com hati mig. Svo ég hef svissað um svæði. Vona að þetta verði fokking betra moðerfokk!
Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir