Auglýsing

Að temja sér draumamálflutning moðhausa

20. mars 2008 klukkan 02:24
Ætli maður verði ekki að fara láta blautan draum sumra skinhelgra trúmanna rætast hér og nú, gera þeim yndislegan greiða og skrifa einsog hinn versti fantur. Hvað gerir maður ekki fyrir óvita?

Máske geta þau einhverntíman í fjarlægri eða nálægri framtíð vísað í skrif mín og bent á, hreykin, stolt og blístrandi full af kristilegri ást og kærleik, að hér sé hatursfullur maður með hjarta fullt af hatri sem hatar alla og suma meira en aðra því ég byggi siðferði mitt og lífsgildi á hatri vegna þess að viðkomandi er trúlaus.

Þegar ég tala um trúaða bavíana þá er fífl bara ekki nógu sterkt orð til að lýsa þeim einu og öllu með tölu. Heimskingjar er ansi þurrkuntulegt orð og dugar ekki heldur sem gott lýsandi nafnorð yfir þessum svartholum gáfna og skilnings. Vanvitar er nokk nálægt því sem maður vill segja um innræktaða, biblíberjandi roðhálsa, en kemst ekki í hálfkvist við það sem ég er reyna leita af.

Mig vantar orð sem sameinar vitstola, slefandi fæðingarhálfvitar og því miður dugar mongólítar ekki til þess verks, enda væri það sannlega og sannarlega særandi fyrir þroskaskerta einstaklinga, og aðstandendur þess, sem eiga sum hver sárt um að binda og það er bara ekki sanngjarnt að spyrna þessum tveimur hópum saman vegna þess að annar hópurinn eru vitleysingjar án þess að vita það meðan hinir eru einfaldega með súran frómas í sínu trúaða toppstykki og finnst það frábært.

En eitthvað verð ég að nota, svo að fáfróðir abrahamsþöngulhausar geti nú vísað í einhver öfgafull skrif sem er fátt annað en upphrópanir og ekkert innihald. Ég gæti gert þetta að heilagri leit af særandi ummælakaleik, þó held ég að sú ferð muni standa stutt. Og þú spyrð:Af hverju?

Því að ég á erfitt með því að koma mér inní hugsunarhátt fávita sem skeina sér með verstu versum biblíunnar til að gera mér alminilega grein fyrir því hvernig maður fer að því að skrifa einsog hinn versti fantur og hvernig skal smeygja sér ljúflega í silkihanska, svipað og prestur laumar sínum lúkum í buddur gamla fólksins, til að orða mjúklega og fallega ábendingar sínar hvað betur má fara hjá hinni háheilögu, óskeikullu, "ekkert slæmt um helvítið segja" opinberu evangelísku ríkiskirkju án þess að útúr þeim orðum megi lesa að verið sé að kalla alla kristna einstaklinga fávita, hálfvita, heimskingja, óvita, vanvita, vitleysingja, fífl, bavíana, mongólíta, asna, bjána, kuntur, skítaklepra, prumpuhala, þöngul- og moðhausa et cetera ad infitum dominus rectus spiritus penis derive digit.

Mér þætti gaman að vita það og öll aðstoð er vel þegin.

Einnig væri góður bónus að fá fleiri uppnefni.
Þórður Ingvarsson
Raus, Trú |

Skrifa athugasemd