Auglýsing

Fokk jú bloggar.is!

25. mars 2008 klukkan 08:56
Ég er farinn.

(þetta er semsagt hlekkur hér fyrir ofan)


Þórður Ingvarsson
Tilkynning | 1 athugasemd

Heitur andvari

24. mars 2008 klukkan 17:21
Það vindar vel um bloggheima. Vorið handan við hornið.

Það eru breytingar í vændum.
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Ég skrifa hluti já

24. mars 2008 klukkan 09:29
Grein eftir mig á Vantrú: Lögbrjótar, brjálæðingar og bingó - brakandi, blússandi, blítt og gott bagl í boði bellna, barrans BlogDodd.
Þórður Ingvarsson
Tilkynning | Engin athugasemd

Hvað hefur þetta fólk á móti peningum?

24. mars 2008 klukkan 06:28
Það er á tímum einsog páskum sem fer verulega í mann að búa í smábæ þar sem veitingahúsarekendur fylgja hinum trúarlagalega helgidagabókstaf. Pískaðir og þjakaðir áfram af fjársektarsektarkennd ef sýslumanni eða lögreglu dettur í hug að heimsækja búllurnar sem þessir einstaklingar reka. Þetta virðast vera fólk sem hafa misst af markaðsviti 101 í sjónvarpinu.

Rétt einsog með jólin, þá kemur töluverður slatti af brottfluttum bæjarbúum til að heimsækja ættingja, vini og vandamenn, jafnvel máske fara í einhvera fermingarveislu/r. Og auðvitað til að fara á fokking fyllerí. En frá fimmtudegi til sunnudags var aldrei hægt að tylla sér niður við hrörlegt borð á knæpu í mesta bróðerni og dreypa á öl, jafnvel spila púl og spjalla við fólk sem maður hefur ekki hitt í töluverðan tíma, áður en farið var í vinnu.

Jú, það var dansiball eftir miðnætti föstudags langa á Víkinni. Vei. Ég var að vinna og hefði ekki nennt að mæta hvorteðer. Svo fór allur laugardagurinn í einhverjar fermingarveislur á öllum helstu stöðum og frá því að þeim veislum lauk rétt fyrir kvöldmat og þar til klukkan mun slá mánudagur (jafnvel þriðjudagur) þá drýpur ekki dropi úr bjórdælunum. Hverskonar yfirkeyrð fokking foráttuvitleysa er þetta? 

Ég endurtek, það var slatti af fólki sem brunaði í bæjinn, flest frá Bænum. Mörg hver - ef ekki öll - vön því að allavega einhver bjórbúllan sé opin á þessum dögum. En af öllum þeim tveim stöðum sem mest líklegir voru til að slökkva þorstann hjá ölþurrum hálsum þá var hvorugur opin. Það sem angrar mig allra fokking mest við þetta er einmitt áðurnefnd staðreynd: fullt af brottfluttum bæjarbúum að kíkja í bæjinn, segja hæ við foreldra og systkini, éta mat, hafa gott og svo bruna aðeins á barinn og hitta aðra með drykk í hönd.

Þetta getur ekki hafa verið hið goðsagnakennda gvuðhrædda smábæjarmentalítet, þetta var bara pjúra fokkíng heimska og ekkert annað.

Nema að þau hafa verið hrædd um að sami snælduvitlausi fávitinn og varð næstum manni að bana á dansiballinu á Víkinni væri enn á stjá með blóðuga glerbrotið sitt. En sá maður hefði verið fláður og stjaksettur áður en hann hefði stigið fæti inn. Af hverju er Keflavík ekki með meira aðdráttarafl fyrir útúrspíttaða og oftjúnaða búðinga? Gera Keflavík að heillandi glæpanýlendu fyrir upprennandi moðhausa með kriminal tendensa svo sómasamlegt fólk getur andað léttar.

Páskafokk!

23. mars 2008 klukkan 09:24
Fokking páskar!

Tengi oftast páska við vorið, smá hlýja og ágætis veður, jafnvel gleði.

En þetta er ömurlegt.

Leiðinlega páska öllsömul!
Þórður Ingvarsson
Raus | 2 athugasemdir

Gleðilega fokking páska...

22. mars 2008 klukkan 21:54
... mæ es.

Hér í útnára markaðs- og viðskiptahelvítisvit eru allir þrír til fimm vín- og/eða veitingarekstraraðilar alveg uppgefnir eftir fermingarveislur og, nema að Kokkurinn sé sá eini í fullu svíngí, þá eru allir staðir lokaðir. Hvergi hægt að tylla sér niður og fá sér einn kaldan af krananum.

Dagskráin í sjónvarpinu er allyfirþyrmilega ömurleg. Nostalklígju þáttur Hjálmars var illþolanlegur, maður þurfti bara kyngja úldnu kekkjunum. Það er ótrúlegt að lítil sem engin breyting hefur verið á grínurum sjónvarpsins. Þetta væri máske líkt fyrir einn þjóðfélagshóp að vera alin upp við sama leikaraliðið í Saturday Night Live frá 1976-81 (með smá eða meiri liðsstyrk frá ´82-87), Chevy Chase, Bill Murray, Steve Martin, Eddie Murphy, John Belushi og fleiri í næstum tuttugu ár eða álíka og að annar þjóðfélagshópur sem, upplifir viðlíka svívirðingur frá sóvétstyrktum, Síberískum, fimm til sex manna grínhóp sem eru skuldbundir lífi sínu til að grína allt til enda sinna lífsdaga burtséð frá hæfileikum þeirra til spaugilegs ímyndurnarafl. Nokkurskonar gúlagsgrínarar með þar til gerðum lögum og greinargerðum hvað telst fyndið og hvað ekki, ef reynt er að gera eitthvað frumlegt verðurðu skotin fimm sinnum, fyrst í hné, olnboga og svo maga, og látin blæða út á frekar húmorslausan hátt. In Soviet Russia Comedy Becomes You.

Eini ljósi punkturinn í þessum kvöldþætti Hjálmars, Er grín G-vara?, voru sketsj SigurJón Gnarr, snjótyppið, Laddi/Felix og Limbó, þessar örfáu skínandi stjörnur er veittu útnáraungdómi og öðrum gárum á árunum ´94-98 von um betri gríndaga í komandi framtíð.
En, vei, svo skyggði yfir hlátursfjöllum íslands þegar Spaugstofan var aftur sett á dagskrá og húmorharðindin hefur eigi horfið að fullu síðan þá. Og þó hefur grínið fundið sinn einstaka farveg í öðrum miðlum. Samt sem áður hefur stór hluti þjóðarinnar verið hýdd í ljósblaktandi stofunni í hartnær tíu ár af sveittum gaddaleðurspaugbeltum Pálma, Karls, Sigurjóns, Erni og Randvers. Stöku sinnum hefur þjóðinni fundist það gott (mmm svo gott) en á heildina, varðandi almenna andlega læknisþjónustu, veitt oss hverskonar sálardeyðandi og óbætanlegan skaða (æ,ó, á! Ekki svo gott).

Það verður helgur, heilagur helgidagur þegar síðasti spaugstofumaður verði riftur samningurinn og viðbjóðurinn verður loksins tekið af dagskrá og öldur þessa tiltekna ljósvakatímabils mun aldrei finna farveg í þessum heimi né öðrum, en ef það er óhjákvæmilegt þá væri heppilegt ef það það mundi hverfa inní eitthvert af þeim fjölda ormagöngum himingrínsins og ferðast til áttunda víddar Dantes og aldrei finna leið til baka.

Frá og með þeim degi, ár hvert í mörg þúsund árþúsund, verða valdir einstaklingar af samskonar húmorskalíber til að setja upp sketsj þeirra og að loknum gjörningi þeirra útvöldu verða þau brennd á báli meðan hlæjandi múgurinn haldast í hendur og horfa á, til að minnast þess ömurlegu tíma er Spaugstofan var helsti brandari... ööh... gvuðs? Og hvað vér erum þakklát Þórhalli ljósvakagoða fyrir þann mannsæmandi heiður og velvild við samborgara er hann er hratt þeirri atburðarrás af stað er hófst með því reka Randver útí kuldann, og í kjölfar stafrænna hræringa varð pressan á RÚV svo gríðarleg að yfirmenn sáu sér ekki annað fært en að þóknast alþýðunni og kippa hvern af öðrum á brott, veita þeim sendiherrastöður. Þetta voru endalok Spaugstofunar

Heill sé Þórhalli Ljósvakagoða hinum grávanga um ár og aldur.

Grínistar eiga að sjá þann sóma í sér að vita hvenær þeirra tími er uppurin, þó Spaugstofumenn mega eiga þann heiður að gefa smá innspýtingu og smá viðbót við hinn afar sérkennilega íslenska húmor, þá var grín Spaugstofunnar komið svo langt yfir síðasta söludag að hún var orðin hlandsúr í mygluðu skötulíki, og það er afar sérhæfður og sjaldgæfur smekkur. Afturhaldshúmor, sem er ekki einu sinni hægt að hlæja að nema af einhverri einkennilegri skyldurækni:

The Sketchologizer
Actual original transcript
Sketch by: Örn Árnason
[Örn Árnason labbar inná almenningsalerni og kemur sér fyrir milli tveggja kamra]
[Karl Ágúst og Pálmi labba inn og koma sér fyrir framan sitt hvoran kamarinn, sitthvorumegin við Örn]
[Örn múltítaskar og rennir niður buxnaklaufunum tekur út typpið og Karl og Pálmi byrja að pissa]
[Að loknu hlandstreymi félagana, þá hristir Örn tólin þeirra beggja, beygir sig niður og stingur þeim báðum uppí kjaft sér og sýgur og sleikir á þeim typpin]
(innsk.: Hér virðist Örn orðinn dálítið æstur)
[Pálmi kömmar í augað á Erni, meðan Karl fær það uppí munninn á mér]
(innsk.: Líklegt brot af þessu atriði hafi ekki verið gert)
[Skot af klofinu mí... Örns]
[Hann gengur frá typpunum og Karl og Pálmi fara]
[Það kemur lítið perraglott á Erni]
[Feid út]
[Svo er þetta bara auglýsing fyrir nýja atvinnu: Sjúgarinn/hristarinn eða eikvah, ahaha ógó fyndið strákar, er það ekki?]

Hárnákvæm og útreiknuð
viðbrögð einstaklinga
í áhættuópnum
Andlausir
Iktsjúka
Dauðvona
Spaugstofu-áhorfendur (AIDS-Á):
Ha. Ha. Ha. Ha.
Þvílíkur blússandi húmor.
Hó. Hó. Hó. Hó.
Örn tók um typpin á þeim.
Hí. Hí. Hí.



En komment Hjálmars um þessa "hommalegu" svía, það var skemmtilegt.

En samt, sjitt, að hugsa sér að vera alinn upp við næstum sömu sjónvarpstrúðana í 20-30 ár! Vá, dísus.


Edit 23/3 08:29: Smá breytingar
Þórður Ingvarsson
Raus, Grín | 2 athugasemdir

Messur

21. mars 2008 klukkan 21:22
Getur þetta pakk ekki virt mitt trúleysi og hætt að mæta í messur!

 Ég verð svo svakalega reiður þegar þau hundsa mig svona og auk þess særir þetta trúleysistilfinningu mína!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Að temja sér draumamálflutning moðhausa

20. mars 2008 klukkan 02:24
Ætli maður verði ekki að fara láta blautan draum sumra skinhelgra trúmanna rætast hér og nú, gera þeim yndislegan greiða og skrifa einsog hinn versti fantur. Hvað gerir maður ekki fyrir óvita?

Máske geta þau einhverntíman í fjarlægri eða nálægri framtíð vísað í skrif mín og bent á, hreykin, stolt og blístrandi full af kristilegri ást og kærleik, að hér sé hatursfullur maður með hjarta fullt af hatri sem hatar alla og suma meira en aðra því ég byggi siðferði mitt og lífsgildi á hatri vegna þess að viðkomandi er trúlaus.

Þegar ég tala um trúaða bavíana þá er fífl bara ekki nógu sterkt orð til að lýsa þeim einu og öllu með tölu. Heimskingjar er ansi þurrkuntulegt orð og dugar ekki heldur sem gott lýsandi nafnorð yfir þessum svartholum gáfna og skilnings. Vanvitar er nokk nálægt því sem maður vill segja um innræktaða, biblíberjandi roðhálsa, en kemst ekki í hálfkvist við það sem ég er reyna leita af.

Mig vantar orð sem sameinar vitstola, slefandi fæðingarhálfvitar og því miður dugar mongólítar ekki til þess verks, enda væri það sannlega og sannarlega særandi fyrir þroskaskerta einstaklinga, og aðstandendur þess, sem eiga sum hver sárt um að binda og það er bara ekki sanngjarnt að spyrna þessum tveimur hópum saman vegna þess að annar hópurinn eru vitleysingjar án þess að vita það meðan hinir eru einfaldega með súran frómas í sínu trúaða toppstykki og finnst það frábært.

En eitthvað verð ég að nota, svo að fáfróðir abrahamsþöngulhausar geti nú vísað í einhver öfgafull skrif sem er fátt annað en upphrópanir og ekkert innihald. Ég gæti gert þetta að heilagri leit af særandi ummælakaleik, þó held ég að sú ferð muni standa stutt. Og þú spyrð:Af hverju?

Því að ég á erfitt með því að koma mér inní hugsunarhátt fávita sem skeina sér með verstu versum biblíunnar til að gera mér alminilega grein fyrir því hvernig maður fer að því að skrifa einsog hinn versti fantur og hvernig skal smeygja sér ljúflega í silkihanska, svipað og prestur laumar sínum lúkum í buddur gamla fólksins, til að orða mjúklega og fallega ábendingar sínar hvað betur má fara hjá hinni háheilögu, óskeikullu, "ekkert slæmt um helvítið segja" opinberu evangelísku ríkiskirkju án þess að útúr þeim orðum megi lesa að verið sé að kalla alla kristna einstaklinga fávita, hálfvita, heimskingja, óvita, vanvita, vitleysingja, fífl, bavíana, mongólíta, asna, bjána, kuntur, skítaklepra, prumpuhala, þöngul- og moðhausa et cetera ad infitum dominus rectus spiritus penis derive digit.

Mér þætti gaman að vita það og öll aðstoð er vel þegin.

Einnig væri góður bónus að fá fleiri uppnefni.
Þórður Ingvarsson
Raus, Trú | Engin athugasemd

Arthur C. Clarke (1917-2008)

18. mars 2008 klukkan 23:55
Las það rétt í þessu að hinn mæti og mesti vísindaskáldsagnahöfundur Arthur C. Clarke hafi látist, níræður að aldri, á spítala í Sri Lanka.

Clarke var án efa langþekktastur fyrir samstarf hans með Stanley Kubrick, önnur látin hetja, þegar þeir unnu að gerð einni bestu sæ-fæ-kvikmynd allra tíma 2001: A Space Odyssey.

Þetta gæti hryggt suma. En, fokk, hann var orðinn níræður og allveikur gjemligjemlinn.

Merkilegast finnst mér að Stefán Fr. hefur ekkert minnst á þetta!
Þórður Ingvarsson
Engin athugasemd

Bingó!!!

18. mars 2008 klukkan 14:08
Vantrú býður uppá bingó föstudaginn 21. næstkomandi. Það var nú einskær tilviljun sem réði því að þetta sé á föstudaginn langa.

Ætli þessir öfgamenn hlekkji sig ekki við Jón Sigurðsson?! Til alls líklegir þessir bljálælingar!
Þórður Ingvarsson
Tilkynning | Engin athugasemd